Raflagnahönnun
Hönnun raflagna í nýbyggingum og við breytingar á eldra húsnæði. Skipulag raflagna, staðsetning búnaðar og undirbúningur teikninga og gagna fyrir framkvæmdir.
Tölvubraut ehf. býður upp á rafmagnshönnun og tæknilega ráðgjöf fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Við sameinum þekkingu á hönnun og verklegum framkvæmdum til að finna lausnir sem henta aðstæðum hvers verkefnis.
Hafa samband ↗Hönnun raflagna í nýbyggingum og við breytingar á eldra húsnæði. Skipulag raflagna, staðsetning búnaðar og undirbúningur teikninga og gagna fyrir framkvæmdir.
Ráðgjöf vegna endurbóta á rafkerfum, töflubúnaðar, lýsingar, stýringa og rafbúnaðar.
Lausnir fyrir snjallheimili og fyrirtæki, meðal annars stýringar, vöktun og mælingar.
Undirbúningur og utanumhald rafmagnsverkefna, samhæfing aðila og eftirfylgni frá hugmynd til framkvæmdar.
Við förum yfir verkefnið, forsendur og markmið.
Við mótum tæknilega lausn og útbúum viðeigandi gögn eftir umfangi verkefnis.
Við getum aðstoðað við útfærslu, samráð og verkefnastýringu eftir þörfum.
Tölvubraut sinnir bæði rafverktöku og rafmagnshönnun. Sú reynsla nýtist þegar ákvarðanir eru teknar á hönnunarstigi: við horfum á tæknilegar forsendur en einnig á það hvernig lausnirnar verða útfærðar á verkstað.
Segðu okkur frá verkefninu. Við skoðum hvaða ráðgjöf, hönnun eða framkvæmd hentar best.
Sími: 858 6165
Netfang: svanur@tbraut.is